Norræn prjónaveisla á Grímsborgum – UPPSELT

Kategori:

Beskrivelse

EINSTÖK NORRÆN PRJÓNAVEISLA Á GRÍMSBORGUM í janúar 2027
Helga Jóna kemur til Íslands í janúar með nokkra af þekktustu prjónahönnuðum heims, þær Anne Ventzel, Maja frá Other Loops, Helgu Isager og Mette frá PetiteKnit!
Þessi sannkallaða prjónaveisla verður haldin á Grímsborgum helgina 21.–24. janúar 2027.

 

PRJÓNAHÖNNUÐIR / KENNARAR

Helga Jóna Þórunnardóttir (Instagram: helgajona / strikketoj)
hefur verið búsett í Danmörku síðan 2011, þar sem hún hefur lengst af kennt bæði útsaum og prjón við Skals Højskole for Design og Håndarbejde. Hún hefur einnig unnið náið með ISAGER í mörg ár, þar sem hún kennir reglulega hópum sem þangað koma, og þar að auki hannar hún prjónauppskriftir. Hún skipuleggur prjónaferðir til Íslands fyrir danska prjónara og kennir víða um heim. Hún er eigandi Strikketøj og skipuleggjandi prjónaveislunnar á Grímsborgum.
www.strikketoj.com 

Anne Ventzel (Instagram: anneventzel)
er danskur prjónahönnuður sem á og rekur fyrirtækið Anne Ventzel. Hún hefur gert það gott um allan heim með fallegum prjónauppskriftum, en hún er lærður fatahönnuður og vann um árabil hjá ýmsum tískufyrirtækjum í Danmörku, þar til hún ákvað að einbeita sér eingöngu að eigin prjónahönnun fyrir nokkrum árum. Anne kennir afar sjaldan og því er þetta einstakt tækifæri til að njóta leiðsagnar hennar á Íslandi.
www.anneventzel.com

Helga Isager (Instagram: helgaisager / isagerstrik)
er danskur prjónahönnuður og eigandi ISAGER, sem hún rekur ásamt móður sinni, Marianne Isager, og eiginmanni Marianne.
Helga er listrænn stjórnandi fyrirtækisins og sér um heildarútlit þess, auk þess að hanna prjónauppskriftir. Helga Isager hefur gefið út þónokkrar prjónabækur sem hafa notið mikilla vinsælda. Hún hefur komið nokkrum sinnum til Íslands áður og kennt ásamt nöfnu sinni, Helgu Jónu. Hún kennir örfáum sinnum á ári þar sem hún ver mestöllum tíma sínum í prjónahönnun og rekstur fyrirtækisins.
www.isagerstrik.dk

Maja Kløvdal (Instagram: otherloops)
er danskur prjónahönnuður og eigandi fyrirtækisins Other Loops. Uppskriftir hennar eru þekktar víða um heim, en hún notar mikið kaðla og alls kyns spennandi áferðir í hönnun sinni. Maja lærði fatahönnun við Designskolen i Kolding og starfaði hjá ýmsum tískufyrirtækjum áður en hún einbeitti sér alfarið að eigin prjónahönnun.
Maja kennir mjög sjaldan og því er þetta einstakt tækifæri til að njóta leiðsagnar hennar á Íslandi.
www.otherloops.com

Mette Wendelboe Okkels (Instagram: petiteknit)
er danskur prjónahönnuður og eigandi fyrirtækisins PetiteKnit. Mette þarf vart að kynna en hún er trúlega þekktasti prjónahönnuður heims. Hún hefur slegið rækilega í gegn með látlausri hönnun og átt stóran þátt í að fá ungt fólk til að prjóna á síðustu árum.
Mette kennir nánast aldrei og því er þetta einstakt tækifæri til að njóta leiðsagnar hennar á Íslandi.
www.petiteknit.com


DAGSKRÁ HELGARINNAR
Fimmtudagurinn 21. janúar
Innritun á hótelið er frá kl. 15.00 til 17.30.
18.00: Kvöldverður í salnum.
20.00: Kynning á skipulagi helgarinnar og kennurum. Að því loknu er prjónasamvera í salnum.

Föstudagurinn 22. janúar
7.00–8.30: Morgunmatur
9.00–12.00: Kennsla 1 með örstuttri kaffipásu
12.00: Hádegisverður
13.00–15.00: Kennsla (2)
15.00–15.15: Kaffi/te og sætabrauð
15.15–16.15: Kennsla (2, framhald)
16.15–18.00: Prjónasamvera eða slökun, t.d. í heita pottinum
18.00: Kvöldverður
19.30: Kvöldstund með prjónahönnuðum. Helga Jóna leiðir sófaspjall við hönnuðina. Hægt verður að skoða hönnun þeirra, spyrja spurninga og heyra um prjónalíf þeirra.
Að því loknu er frjáls tími og samveru- og prjónastund í stóra salnum.

Laugardagurinn 23. janúar
7.00–8.30: Morgunmatur
9.00–12.00: Kennsla 3 með örstuttri kaffipásu
12.00: Hádegisverður
13.00–15.00: Kennsla (4)
15.00–15.15: Kaffi/te og sætabrauð
15.15–16.15: Kennsla (4, framhald)
16.15–18.00: Prjónasamvera eða slökun, t.d. í heita pottinum
18.00: Kvöldverður
19.30: Kvöldstund með prjónahönnuðum. Helga Jóna leiðir sófaspjall við hönnuðina. Hægt verður að skoða hönnun þeirra, spyrja spurninga og heyra um prjónalíf þeirra.
Að því loknu er frjáls tími og samveru- og prjónastund í stóra salnum.

Sunnudagurinn 24. janúar
7.00–8.30: Morgunmatur
ATH.: Eftir morgunmatinn þarf að skila herbergjunum, í síðasta lagi kl. 11.00.
9.00–12.00: Kennsla 5 með örstuttri kaffipásu
12.00: Hádegisverður og kveðjustund


KENNSLAN
Kennt verður í sameiginlegu rými Deluxe-húsanna (alls 5 hús) og hámarksfjöldi þátttakenda á hverju námskeiði er 15. Allir þátttakendur fá þriggja tíma námskeið með hverjum og einum prjónahönnuði/kennara, alls 15 klukkustundir. Hámarksheildarfjöldi þátttakenda á prjónahelginni er 75.

Öll námskeiðin fara fram á ensku eða dönsku, nema hjá Helgu Jónu, sem kennir á íslensku nema erlendir þátttakendur séu á námskeiðinu. Námskeiðsgögn eru á dönsku eða ensku.


VERÐ Á HEILDARPAKKA

Athugið að einungis er hægt að kaupa heildarpakkann með öllu því sem talið er upp hér að neðan. Verð eru í dönskum krónum þar sem Strikketøj stendur fyrir helginni í samstarfi við ferðaskrifstofuna Jysk Rejsebureau (skráningarnúmer hjá Rejsegarantifonden: 3654) og eru bæði fyrirtækin dönsk. Því er íslenska verðið háð gengi dagsins.

Verð á mann:
Miðað við 2 í herbergi: ca 184.100 ísl.kr
(10.000 DKK) á mann
52 pláss í boði í aðskildum rúmum/26 herbergi og 10 pláss í hjónarúmi/5 herbergi

Einstaklings herbergi: ca 206.200 ísl.kr (11.200 DKK)
13 pláss í boði / 13 herbergi

Staðfestingargjald, ca 55.250 Isl.kr (3.000 DKK) greiðist við skráningu og lokagreiðsla skal hafa borist eigi síðar en 16. nóvember 2026.

Gistináttaskattur er ekki innifalinn í verðinu og greiðist á hótelinu við komu.
Gistináttaskatturinn árið 2026 er 800 ISK. á herbergi á nótt (gæti breyst um áramót).

Innifalið í pakkanum er:
3 x gistinætur með morgunmat
3 x tveggja rétta kvöldverðir
3 x léttir hádegisverðir
2 x síðdegishressing
2 x kvöldvaka með prjónahönnuðunum
Þriggja tíma námskeið með hverjum prjónahönnuði (alls 15 klst.)
Garn í prufur á námskeiðunum


SKILMÁLAR

  • Staðfestingargjald greiðist við bókun og lokagreiðsla skal innt af hendi eigi síðar en 16. nóvember 2026.
  • Gistináttaskattur greiðist við komu á hótelið.
  • Bókun fæst ekki endurgreidd eftir greiðslu en hægt er að gera nafnabreytingu að kostnaðarlausu.
  • Ef lágmarksfjöldi þátttakenda næst ekki getur viðburðurinn fallið niður og fá þátttakendur þá fulla endurgreiðslu.
  • Ath.: Strikketøj áskilur sér rétt til breytinga á dagskrá ef nauðsyn krefur.


SKÁNING – UPPSELT
Skráning fer fram í gegnum bókunarkerfi JYSK REJSEBUREAU þar sem helgin flokkast sem pakkaferð. JYSK REJSEBUREAU er dönsk ferðaskrifstofa með gild leyfi til sölu slíkra viðburða.
Sendið póst á Michael Køhler Lassen: mlas@jr.dk og fyllið eftirfarandi 7 atriði út:

  1. Fullt nafn/Full name
  2. Fæðingardagur og ár/Date of birth
  3. Netfang/Email address
  4. Símanúmer/Phone number
  5. Ég óska eftir að deila herbergi með (nafn) / who you would like to share a room with.
  6. Eins eða tveggja manna herbergi. Takið fram ef þið getið deilt hjónarúmi/ Preferred room type /
  7. Nauðsynlegar sérþarfir á fæði (upplýsingar fyrir hótel) /Allergies
  • Þegar skráningin hefur borist, og hún verið staðfest, sendir Jysk Rejsebureau þér persónulegan greiðsluhlekk fyrir staðfestingargjaldið.
  • Staðfestingargjaldið er 3.000 DKK og þegar greiðslan hefur borist og verið samþykkt, ert þú skráð/ur á Norrænu pjónaveisluna. Ath. að staðfestingargjaldið er óendurkræfanlegt.
  • Jysk Rejsebureau sendir þér nýjan greiðsluhlekk uþb 80 dögum fyrir brottför, fyrir eftirstöðvar Prjónaveislunnar. Greiðsla þeirra skal hafa borist eigi síðar en 70 dögum fyrir helgina, þ.e. 16. nóvember 2026.

Þegar greitt hefur verið að fullu, er greiðslan óendurkræfanleg en hægt er gera nafnabreytingu að kostnaðarlausu.
Athugið: Að sjálfsögðu er einnig hægt að greiða alla upphæðina strax eða greiða eftirstöðvarnar fyrr.

Skráning er ekki endanlega staðfest fyrr en greiðsla á staðfestingargjaldi hefur farið fram og verið samþykkt.

Ef einhverjar spurningar vakna, vinsamlegast sendið póst á: kursus@strikketoj.com

Anmeldelser

Der er endnu ikke nogle anmeldelser.

Kun kunder, der er logget ind og har købt denne vare, kan skrive en anmeldelse.